Nordbo er Sænskt vörumerki, staðsett í Malmö. Hugmyndin á bakvið NORDBO er að framleiða fæðubótarefni sem hafa klíníska virkni og rannsóknir sem styðja við bakið á þeim. NORDBO býr til sérhannaðar formúlur sem hafa jákvæð umhverfisáhrif miðað við aðrar vörur á markaðnum. Með öðrum orðum: Fæðubótarefni sem virka vel, hönnuð með virðingu við plánetuna okkar.
Öll hráefni eru vandlega metin útfrá eigindlegu (e. qualitative) og umhverfislegu sjónarmiði. Allar vörur eru framleiddar undir GMP vottun.